§ 162/2006 13. gr.Viðurlög.

is · 1,583 chars · active
13. gr. 1)
Hver sem tekur við framlögum, eða jafnvirði þeirra, sem óheimilt er að veita viðtöku skv. 6. gr. eða hærri framlögum en heimilt er skv. 7. gr. skal sæta sektum eða fangelsi allt að tveimur árum.
Hver sem skilar ekki upplýsingum eða skýrslum samkvæmt ákvæðum laga þessara til ríkisendurskoðanda
2) innan tilgreindra tímamarka skal sæta sektum. Sama gildir séu veittar upplýsingar ekki í samræmi við settar reglur.
Stjórnmálasamtök, kjörnir fulltrúar þeirra og frambjóðendur, sem og frambjóðendur í persónukjöri, sem taka þátt í að fjármagna eða birta efni eða auglýsingar í tengslum við stjórnmálabaráttu án þess að fram komi við birtingu að efnið sé birt að tilstuðlan eða með þátttöku þeirra, sbr. 1. mgr. 2. gr. d,
3) skulu sæta sektum.
4)
Hver sem af ásetningi kostar nafnlausan áróður frá þeim degi er kjördagur hefur formlega verið auglýstur vegna kosninga til Alþingis, til sveitarstjórna eða til embættis forseta Íslands, svo og vegna boðaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu, sbr. 2. mgr. 2. gr. d, skal sæta sektum.
3)
Gera skal lögaðilum sekt fyrir brot á 1.–4. mgr.
3)
Refsa skal fyrir brot á 1.–3. mgr. séu þau framin af ásetningi eða gáleysi.
3)
Tilraun og hlutdeild í brotum samkvæmt þessari grein er refsiverð eftir því sem segir í III. kafla almennra hegningarlaga.
Heimilt er að gera upptæk til ríkissjóðs framlög sem tekið er við án heimilda eða umfram heimildir samkvæmt lögum þessum eftir því sem segir í VII. kafla A almennra hegningarlaga.
5)
1) L. 139/2018, 11. gr. 2) L. 139/2018, 7. gr. 3) L. 109/2021, 8. gr. 4) L. 139/2018, 12. gr. 5) L. 119/2010, 11. gr.

Primary source. The text above is the canonical statute body as it appears in this revision of the atlas. Verify against the official gazette before quoting in litigation or formal advice. Spot an error? Suggest a correction.