Frambjóðendur skulu skila ríkisendurskoðanda 1) árituðum reikningum sínum eigi síðar en þremur mánuðum frá því að kosning fór fram. Ríkisendurskoðandi 1) skal í kjölfarið, eins fljótt og unnt er, birta áritaðan reikning frambjóðenda. 2) … 2) Birta skal nöfn allra lögaðila sem veita framlög til kosningabaráttu frambjóðandans sem og fjárhæð þeirra. Einnig skal birta nöfn einstaklinga sem veitt hafa framlög sem eru metin á meira en 300.000 kr. 2) til kosningabaráttu frambjóðandans. Ef uppgjör vegna kosningabaráttu sýnir jákvæða eða neikvæða fjárhagsstöðu skal frambjóðandi árlega skila nýju uppgjöri til ríkisendurskoðanda 1) eða allt þar til umframfjármunum hefur verið ráðstafað eða skuld verið greidd. 3) 1) L. 139/2018, 7. gr. 2) L. 139/2018, 10. gr. 3) L. 119/2010, 10. gr. VI. kafli. Viðurlög og gildistaka. 1) 1) L. 109/2021, 9. gr.
§ 162/2006 11. gr.Upplýsingaskylda um reikninga yfir kosningabaráttu.
is · 842 chars · active
Primary source. The text above is the canonical statute body as it appears in this revision of the atlas. Verify against the official gazette before quoting in litigation or formal advice. Spot an error? Suggest a correction.