§ 162/2006 7. gr.Hámarksframlög og kostnaður vegna kosningabaráttu. 1)

is · 2,228 chars · active
Stjórnmálasamtökum er óheimilt að taka á móti hærri framlögum frá lögaðilum en sem nemur 550.000 kr. á ári. Stjórnmálafélögum innan samstæðu stjórnmálasamtaka er þó heimilt að taka á móti framlögum frá lögaðilum umfram þá fjárhæð, samtals að hámarki 100.000 kr. Frambjóðendum er óheimilt að taka á móti hærri framlögum frá lögaðilum en sem nemur 400.000 kr. á ári. Undanþegnir hámarki framlaga eru afslættir af vörum og þjónustu sem veittir eru af markaðsverði og standa öðrum viðskiptamönnum almennt til boða og slíkir afslættir séu sérgreindir í reikningum. Lögaðilar sem inna af hendi framlög til stjórnmálasamtaka eða frambjóðenda skulu sérgreina heildarfjárhæð slíkra framlaga í ársreikningum sínum. Telja skal saman framlög tengdra aðila.
1)
Stofnframlög, þ.e. framlög frá lögráða einstaklingum og lögaðilum sem eru veitt í beinum tengslum við stofnun stjórnmálasamtaka, mega að hámarki nema sem svarar til tvöföldu hámarksframlagi skv. 1. málsl. 1. mgr.
1)
2)
Stjórnmálasamtökum er heimilt að taka á móti framlögum frá lögráða einstaklingum sem nemur allt að 550.000 kr. á ári. Stjórnmálafélögum innan samstæðu stjórnmálasamtaka er þó heimilt að taka á móti framlögum frá einstaklingum umfram þetta, samtals að hámarki 100.000 kr. Frambjóðendum er heimilt að taka á móti framlögum frá lögráða einstaklingum sem nemur allt að 400.000 kr. á ári.
1)
Heildarkostnaður frambjóðenda af kosningabaráttu í kosningum til Alþingis eða sveitarstjórna
2) má ekki vera hærri en sem nemur 2 millj. kr.,
1) að viðbættu álagi sem hér segir:
Á kjörsvæði með fleiri en 50.000 íbúa, 18 ára og eldri, 140 kr.
1) fyrir hvern.
Á kjörsvæði með 40.000–49.999 íbúa, 18 ára og eldri, 185 kr.
1) fyrir hvern.
Á kjörsvæði með 20.000–39.999 íbúa, 18 ára og eldri, 230 kr.
1) fyrir hvern.
Á kjörsvæði með 10.000–19.999 íbúa, 18 ára og eldri, 275 kr.
1) fyrir hvern.
Á kjörsvæði með færri en 10.000 íbúa, 18 ára og eldri, 320 kr.
1) fyrir hvern.
Heildarkostnaður frambjóðanda í forsetakosningum af kosningabaráttu má ekki vera hærri en sem nemur tvöfaldri þeirri fjárhæð sem tiltekin er í 4. mgr. á hvern íbúa á kjörskrá fyrir landið allt.
2)
1) L. 139/2018, 5. gr. 2) L. 119/2010, 6. gr.
IV. kafli.
Reikningsskil og upplýsingaskylda stjórnmálasamtaka.

Primary source. The text above is the canonical statute body as it appears in this revision of the atlas. Verify against the official gazette before quoting in litigation or formal advice. Spot an error? Suggest a correction.