Sveitarfélögum er skylt að veita stjórnmálasamtökum sem fengið hafa a.m.k. einn mann kjörinn í sveitarstjórn eða hlotið a.m.k. 5% atkvæða í næstliðnum sveitarstjórnarkosningum árleg fjárframlög til starfsemi sinnar. Ákvörðun um slík framlög tekur sveitarstjórn samhliða samþykkt fjárhagsáætlunar ár hvert. Fjárhæðinni skal úthlutað ár hvert í hlutfalli við atkvæðamagn. … 1) 2) Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga setur 2) viðmiðunarreglur til að stuðla að samræmdri framkvæmd á greiðslum framlaga frá sveitarfélögum til stjórnmálasamtaka samkvæmt þessari grein. Reglurnar skal taka til endurskoðunar árlega. 2) Á því ári sem sveitarstjórnarkosningar eru skal úthlutun framlaga fara fram á þann hátt að stjórnmálasamtök fái framlög fyrir síðari hluta þess árs í samræmi við kjörfylgi í nýafstöðnum kosningum. 3) 1) L. 109/2021, 5. gr. 2) L. 139/2018, 4. gr. 3) L. 119/2010, 4. gr. 5. gr. a. Skilyrði úthlutunar. Skilyrði úthlutunar á fé úr ríkissjóði og frá sveitarstjórnum er að viðkomandi stjórnmálasamtök séu skráð skv. I. kafla C, hafi áður uppfyllt upplýsingaskyldu sína við ríkisendurskoðanda skv. 8. og 9. gr. og að ríkisendurskoðandi hafi birt ársreikning þeirra. 1) 1) L. 109/2021, 6. gr. III. kafli. Almenn framlög til stjórnmálastarfsemi.
§ 162/2006 5. gr.Framlög til stjórnmálasamtaka frá sveitarfélögum.
is · 1,253 chars · active
Primary source. The text above is the canonical statute body as it appears in this revision of the atlas. Verify against the official gazette before quoting in litigation or formal advice. Spot an error? Suggest a correction.